Hvar er Jóhanna?

Jóhanna! Við erum hér (eldri borgarar) en hvar ert þú?
Hvað með öll kosningaloforðin um bætt kjör, nú þegar! Ha?
Er þetta bara eins og alltaf áður, blub, blub út í loftið og ekkert
að marka ykkur. Það þýðir væntanlega að við eldri borgarar og öryrkjar þurfum
að hyggja að stofnun nýs flokks fyrir næstu kosningar sem geta orðið
fyrr en okkur grunar! Við viljum efndir, ekkert bull um vinnuhópa sem gera
yfirleitt ekki neitt. Láttu verkin tala Jóhanna, þá þarftu ekki að kvíða framtíðinni.
Með ósk um bjartari framtíð.
Eldri borgari.

Tillögur Samfylkingarinnar og Ingibjörg Sólrún

Í morgunblaðinu 23. febr. ´07 var þessi grein Ingibjargar:

 Forgangsmál Samfylkingarinnar

"Við ætlum að hækka lífeyri almannatrygginga og taka upp 10% skatt á greiðslur úr lífeyrissjóði"

Þetta er mjög athyglisvert, en hverjar yrðu efndirnar ef Samfylkingin næði takmarki sínu um að komast í ríkisstjórn? - en ef ekki, ætla þeir þá að leggja nyður skottið og gleyma málinu? Ekki minnist ég þess að hafa séð eina einustu tillögu frá þessum flokki, né öðrum strjórnarandstöðu-flokkum, til leiðréttinga þessu óréttlæti sem eldri borgarar eru beittir! Þeir yfirgáfu þingið núna án þess að svo mikið sem minnast á þessi mikilvægu mál! Það lá svo mikið á að fara í frí, til Kanari eða eithvað annað. Bara gleyma til hvers það var kosið á þing!


Össur og herinn hans BB

Það er undarlegt að ekki má nefna varnir Íslands eða eflingu lögreglunnar, svo Össur og co (SJS/Ögmundur) fari úr límingunum. Herinn er farinn og landið er nánast varnarlaust . Ætla þessir menn að ábyrgjast varnir landsins og íbúa þess. Athyglisvert er, að Össur og Ingibjörg Sólrún vilja endilega ganga í ESB, og hvað þá. Verða íslendingar þé ekki herskyldir, ef bandalaginu   dettur í hug að stofna eigin her?

"F" innflytjendur + trúmál

Þetta með "Ísland fyrir íslendinga" osfr. Mér lýst ekki illa á þá hugmynd  en það er nú einu sinni svo, að við erum ekki einir hér lengur, það hafa nefnilega bæst í hópinn þúsundir "útlendinga" sem eru, eða eru verðandi íslendingar. Ég er ekki á móti innflytjendum svo lengi sem þeir bera okkur og börnum okkar ekki ofurefli. Gott, en eitt hræðir mig og það eru ein trúarbrögð sem ekki ætti að leifa hér og á ég þá við Islam, ekki endilega trúarinnar vegna, heldur vegna þess að fylgendur islam s.s. múhameðstrúar taka sín trúarbrögð sem þeirra lög hvar sem þeir búa og virða ekki landslög í því landi sem þeir búa hverju sinni. Þeir lúta lögum Islam, öðrum ekki. Þess vegna tel ég það fólk óæskilegt! Og ef Frjálslyndi flokkurinn vill fylgi, þá veður hann að standa við orð sín, en ekki bakka þó hinir flokkarnir skammist og hamist sem óðir menn. Það er þeirra stíll!

Ath.semd vegna álvers í Straumsvík

 

Ekki skal stækka álver ALCAN í Straumsvík og enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sínu. Þetta virðist vera krafa íbúa í Hafnarfirði, er okkur sagt, en er það svo?

Á síðasta ári yfirgáfu "grænu" karlarnir á Keflavíkurflugvelli okkur fyrir fullt og allt og mörg-hundruð manns misstu vinnuna. Nú vilja VG (gömlu kommarnir) ásamt taglhnýtingunum í S og F flokkunum, loka álverum og hætta öllum virkjunarframkvæmdum og þar með losa okkur við "gráa" fólkið og er alveg sama um afkomu þess. Þetta fólk á fjölskyldur og hefur góða vinnu með bestu launum sem verkafólki á Íslandi býðst!

En þetta er pólitík og tilgangurinn helgar meðalið, sama hvað það kostar. Þessum flokkum er nefnilega alveg sama um hið vinnandi fólk, bara ef (eins og þeir vona) að þessi verk þeirra komi ríkisstjórninni frá. Að öðru leiti er þeim sama um afkomu þjóðarinnar.


Höfundur

Ragnar J. Jónsson
Ragnar J. Jónsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband